Jólatrjáasala Flugbjörgunarsveitarinnar 2022

jólatré -

Jólatrjáasala Flugbjörgunarsveitarinnar 2022

Jólatrjáasala Flugbjörgunarsveitarinnar Reykjavík er opin frá 5. desember til 24. desember.

Opnunartímar á Flugvallarvegi 7 eru:

  • Helgar kl. 10-22
  • Virkir dagar kl. 12-22
  • 24. desember kl. 9-13

Hægt er að mæta á Flugvallarveg 7 líkt og síðustu ár en einnig er hægt að kaupa vörur hér í vefverslun Flugbjörgunarsveitarinnar og sækja þær á Flugvallarveg 7 eða fá heimsent í Reykjavík og Kópavogi gegn vægu gjaldi.

Í jólatrjáasölu Flugbjörgunarsveitarinnar er hægt að kaupa nordmannsþin, stafafuru, blágreni og rauðgreni. Að auki er boðið upp á greinar, jólatrésfætur, pallafuru og kerti. Eins er hægt að kaupa bók Arngríms Hermannssonar, félaga í FBSR, sem nefnist Björgunarsveitin mín og er gefin út i tilefni 70 ára afmælis Flugbjörgunarsveitarinnar Reykjavík.


Merki